Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd þriðjudaginn 9. maí
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 9. maí í húsnæði nefnda- og greiningarsviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 9:15.
Fundarefnið er skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2022.
Gestir fundarins verða: Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, fyrrum varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, og Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.